Skólasetning haustið 2026
Skólasetning er hjá öllum árgöngum mánudaginn 24. ágúst kl. 11:30
Í vetur tekur skólinn upp nýtt fyrirkomulag umsjónar í Víkurskóla. Markmið breytingarinnar er að efla tengsl milli nemenda og umsjónarkennara, styrkja einstaklingsmiðaða eftirfylgni og styðja enn betur við náms- og félagslega velferð nemenda.
Nemendur verða í blönduðum umsjónarhópum, þar sem hver umsjónarkennari er með 12–13 nemendur úr 8., 9. og 10. bekk
Mánudaginn 24. ágúst mæta nemendur í stofur til sinna umsjónarkennara kl. 11:30 - en umsjónarkennarar senda út póst fyrir helgi með nákvæmari upplýsingum.
Klukkan 12 verður svo boðið upp á grillaðar pylsur og fjör í portinu fyrir framan skólann