Víkurskóli leiðir nýtt Erasmus+ verkefni um tjáningu, leiklist og sjálfstraust
Víkurskóli hlaut nýlega 250.000 evra styrk úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins til að leiða alþjóðlega samstarfsverkefnið “Stage for Change: Transforming Public Speaking with Creative Theatre”. Fyrsti fundur í verkefninu (kick-off fundur) var haldinn í Víkurskóla dagana 13.-14. október og á þriðja degi skipulagði Víkurskóli ferðalag fyrir erlendu gestina þar sem m.a. áfangastaðir voru Þingvellir, Gullfoss, Geysir, Friðheimar og Laugarás Lagoon.
Markmið Erasmus-verkefnisins er að efla færni nemenda í framsögn og tjáningu, styrkja sjálfstraust þeirra og auðvelda þeim að koma fram í margmenni. Til þess verða aðferðir leiklistar, sögugerðar og spuna fléttaðar saman við stafræna tækni, leikjavæðingu og gervigreind.
Í verkefninu taka þátt sex skólar og samtök frá Íslandi, Serbíu, Tyrklandi, Póllandi, Grikklandi og Norður-Makedóníu. Víkurskóli fer með verkefnisstjórn og leiðir samstarf hópsins.
Á verkefnistímanum verður meðal annars að:
- þróa handbók fyrir kennara um notkun leiklistar við kennslu í tjáningu og framsögn,
- útbúa stafræna verkfærakistu með kennsluáætlunum, verkefnum og margmiðlunarefni,
- koma á fót gagnvirkum stafrænum vettvangi fyrir kennara,
- prófa kennsluefnið í skólum þátttökulandanna,
- halda þjálfun fyrir kennara í Aþenu í Grikklandi,
- efna til nemendaheimsóknar í Varsjá í Póllandi þar sem nemendur fá að vinna með leiklist, tjáningu og samskipti í alþjóðlegum hópi.
Verkefnið fellur vel að kennsluháttum Víkurskóla þar sem áhersla er lögð á samþættingu námsgreina, verkefnamiðað nám, sköpun, tækni og virka þátttöku nemenda. Reynsla skólans af leiklist, sviðsframkomu og skapandi verkefnum verður mikilvægur hluti af samstarfinu.
Stage for Change verkefnið stendur yfir í 26 mánuði, frá 1. október 2026 til 30. nóvember 2028. Niðurstöður og námsefni verkefnisins verða aðgengileg kennurum og skólum og eiga að nýtast áfram eftir að verkefninu lýkur.
Við hlökkum til að segja frá framvindu verkefnisins og deila reynslu nemenda og starfsfólks á næstu misserum.